Innlent

Vilja afnám fyrningarfresta

Tæplega 3.000 manns hafa skráð nafn sitt á undirskriftalista samtakanna Blátt áfram, þar sem alþingismenn eru hvattir til að samþykkja frumvarp um afnám fyrningarfresta í kynferðisafbrotum gegn börnum. Ágúst Ólafur Ágústsson lagði frumvarpið fram en dómar hafa ítrekað fallið þar sem þeir ákærðu er fundnir sekir um kynferðisafbrot gegn börnum en eru sýknaðir þar sem brot þeirra eru fyrnd. Í frumvarpi Ágústs er bent á sérstöðu kynferðisbrota gegn börnum þar sem þolendur leita sér ekki aðstoðar fyrr en löngu eftir að brotin eru framin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×