Innlent

Töluvert um innbrot

Töluvert hefur verið tilkynnt um innbrot á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring. Brotist var inn í íbúðarhús í austurborginni á þriðja tímanum í nótt. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var tveimur DVD-spilurum stolið. Málið er í rannsókn. Annað innbrot var tilkynnt rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi í íbúðarhús á Seltjarnarnesi. Þá var tilkynnt um enn eitt innbrotið í bænum um tuttugu mínútum síðar. Tilraun var jafjnframt gerð til þess að brjótast inn í þriðja húsið þar sem gluggi var spenntur upp. Ekki hafa fengist upplýsingar um hversu miklu var stolið en að sögn lögreglunar í Reykjavík er málið í höndum rannsóknardeildar lögreglunnar. Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi áforma að funda um innbrotsöldu í bænum á fundi sínum síðar í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×