Innlent

Skemmd á vegi þar sem slys varð

Skemmd er á Suðurlandsveginum skammt frá þeim stað þar sem banaslys varð síðastliðinn sunnudag. Um það bil fjögurra sentimetra breið rás er á miðjum vegi og tvær litlar holur þar ofan í. Lögreglan á Selfossi sagði að við bestu aðstæður virðist þessi skemmd ekki geta talist hættuleg en hugsanlega gegnir öðru máli þegar ísing er á veginum og bílar koma hratt í beygjuna. Verið er að rannsaka tildrög banaslysins og þá hvort rekja megi orsök þess til skemmdanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×