Innlent

Afleysingalöggur fundu dóp

20 grömm af hassi, 10 grömm af amfetamíni og lítilræði af kókaíni fundust í bifreið í Hafnarfirði í fyrrinótt. Tveir menn voru teknir í yfirheyrslur en sleppt að þeim loknum og telst nú málið upplýst. Mennirnir þóttu hegða sér grunsamlega þegar lögreglan hafði afskipti af þeim við hefðbundið eftirlit og var því leitað í bílnum. Tveir starfsmenn Fíkniefnalögreglunnar stóðu lögregluvaktina í Hafnarfirði þar sem árshátíð hafnfirsku lögreglunnar var sama kvöld. Þeir virðast hafa unnið fyrir kaupinu sínu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×