Innlent

Bílbruni á Hverfisgötu

Vegfarandi sem átti leið um Hverfisgötuna í gærmorgun sá að kviknað hafði í bíl sem lá upp við vegkantinn og tilkynnti hann það Slökkviliðinu sem kom á vettvang innan fárra mínútna. Ökumaðurinn sást hins vegar leggja á flótta og var ófundinn þegar Fréttablaðið hafði samband við lögregluna. Ökumaðurinn hafði keyrt niður tvær veggrindur áður en hann stöðvaði bílinn og leikur grunur á að hann hafi verið ölvaður. Ekki er ljóst hvað olli því að það kviknaði í bílnum en hugsanlega hefur bensín farið í púströrið við áreksturinn eða kviknað í út frá rafmagni. Bíllinn er gjörónýtur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×