Innlent

Tekinn með amfetamín

Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ölvuðum manni á dansleik í fyrrinótt og spurði hann hvort hún mætti leita á honum og leyfði hann það. Fannst á honum lítið magn af amfetamíni og var hann því handtekinn og gisti síðan fangageymslur. Í gær var hann svo yfirheyrður og honum sleppt. Að sögn lögreglu er algengara að menn heimili að leitað sé á þeim þó svo að þeir séu með efni á sér. Flestir telja það skárri kost að láta leita á sér og vonast til að löggan finni ekki efnin heldur en að vekja grunsemdir og hafa lögreglumenn yfir sér uns þær eru í ljós leiddar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×