Innlent

Vélsleðamaður slasaðist

Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út um hádegi í gær eftir að tilkynnt hafði verið um að breskur ferðamaður hefði lent í vélsleðaslysi skammt frá Dettifossi. Þegar björgunarsveitir komu að manninum ásamt lækni var sú ákvörðun tekin að senda þyrluna til baka aftur þar sem maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. Í upphafi var þó ekki á annað hættandi en að senda þyrluna norður því hvorki lögregla né björgunarsveitir höfðu komist í samband við menn á slysstað. Ferðamaðurinn reyndist vera illa meiddur á hendi og kom til byggðar í fylgd björgunarsveitarmanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×