Innlent

Lögregla stöðvar glæfraför

Lögreglan á Blönduósi stöðvaði á föstudag hraðferð þriggja Spánverja sem hafa ferðast um landið síðustu daga á jeppling. Spánverjarnir voru með landakortið á lofti og ætluðu til Akureyrar með viðkomu á Hveravöllum þar sem þeir hugðu í hverina. Lögreglan gat forðað þeirri ferð. Þeim var beint í sundlaugina á Sauðárkróki. Ólafur Jónsson, staðarhaldari á Hveravöllum, segir leiðina að jafnaði einungis færa breyttum jeppum. Færi hafi verið eindæma gott en þó ekki nægilega gott fyrir jeppling.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×