Innlent

Flýði brennandi bíl

Ökumaður stakk af eftir að hafa ekið utan í tvo staura á Hverfisgötu rétt fyrir klukkan níu í morgun. Eldur kom upp í bílnum sem var fljótt alelda. Slökkviliðið var kvatt á staðinn og tók nokkrar mínútur að ráða niðurlögum eldsins. Vegfarendur gátu gefið lögreglu nokkuð góða lýsingu á ökumanninum sem hljóp af vettvangi og er hans leitað. Öruggt er talið að maðurinn hafi eitthvað að fela fyrst hann flúði af vettvangi. Bíllinn er ónýtur og var fluttur af vettvangi með dráttarbíl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×