Innlent

Eldur í íbúðarhúsi á Kirkjubóli

Eldur kviknaði í íbúðarhúsinu á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Slökkvilið Hólmavíkur var kallað út og tókst að slökkva eldinn á skömmum tíma. Talsverðar skemmdir urðu á innanstokksmunum vegna sóts og vatns. Unnið hafði verið að endurbótum í húsinu þegar glóð komst í einangrun á milli þilja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×