Innlent

Hótaði lögmanni

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær mann til tveggja mánaða fangelsisvistar eftir að sannað þótti að maðurinn hefði haft í hótunum við hæstaréttarlögmann. Hafði viðkomandi sent lögmanninum bréf þar sem fram komu ýmsar hótanir og þótti dómnum sýnt að með bréfinu hefði maðurinn gerst brotlegur við almenn hegningarlög enda orðalag bréfsins til þess fallið að vekja ótta viðtakanda um líf sitt og velferð. Refsingu yfir manninum var þó frestað og fellur hún niður haldi viðkomandi skilorð næstu þrjú árin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×