Innlent

VÍS sýknað af bótakröfu

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Vátryggingafélag Íslands í gær af kröfum ungrar konu sem stefnt hafði fyrirtækinu. Henni þóttu bætur þær sem hún hlaut vegna slyss ekki nægjanlegar. Konan var atvinnulaus þegar slysið átti sér stað og voru henni greiddar bætur miðað við lágmarkslaun samkvæmt skaðabótalögum en konan taldi að miða ætti við meðaltekjur sjúkraliða enda var fordæmi fyrir því í öðru máli sem fór alla leið fyrir Hæstarétt. Féllst dómurinn ekki á þau rök og var kveðinn upp sýknudómur. -aöe



Fleiri fréttir

Sjá meira


×