Innlent

Í fangelsi fyrir að lemja löggur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á fertugsaldri í hálfs árs fangelsi fyrir árás á tvo lögregluþjóna. Lögreglumennirnir, sem voru óeinkennisklæddir, stöðvuðu bíl sem maðurinn var farþegi í við Spöngina í Reykjavík síðastliðið sumar. Hann réðst í kjölfarið á lögreglumennina. Hann bar því við að hann hefði ekki vitað að um lögreglumenn væri að ræða, en dómarinn taldi þá skýringu hans ekki ganga upp. Maðurinn á þó nokkurn sakaferil að baki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×