Innlent

Ekki grunur um manndráp

"Það er auðvitað ríkissaksóknara að taka ákvörðun um hvort framhald verður á rannsókninni en að okkar mati leikur enginn grunur á neinu misjöfnu," segir Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, vegna dauðaslyss þess sem þar varð í eldsvoða í desember síðastliðnum. Þar lést Elvar Fannar Þorvaldsson en tvennt komst lífs af. Rannsókn lögreglu á eldsvoðanum lauk fyrir helgi og var málið sent saksóknara. Björn metur hvort þörf er á frekari rannsókn eða hvort ákært verður en segir ekkert gefa til kynna að um manndráp hafi verið að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×