Innlent

Fannst látinn í Sandgerðishöfn

Roskinn karlmaður fannst látinn í Sandgerðishöfn í nótt. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði og Garði voru kallaðar út um miðnættið en þá voru ættingjar mannsins farnir að hafa af honum áhyggjur. Hann hafði verið að vinna við bát í höfninni fyrr um daginn. Um þrjátíu björgunarsveitarmenn, þar af þrír kafarar, leituðu mannsins og fannst hann látinn í höfninni um klukkan hálf tvö í nótt. Talið er að hann hafi fallið á milli skips og bryggju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×