Innlent

Ók á hús og ljósastaur

Ökumaður fólksbíls missti stjórn á honum þegar hann ók eftir Fjarðarstræti á Ísafirði eftir hádegið, með þeim afleiðingum að hann ók fyrst á íbúðarhús og síðan á ljósastaur þar sem hann nam staðar. Svo vel vildi til að enginn gangandi vegfarandi var þarna á ferð í sömu andrá. Ökumaður slapp ómeiddur, enda í bílbelti, en skemmdir urðu á húsinu og bílnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×