Innlent

Hrina fíkniefnamála á Akureyri

Tveir menn voru handteknir á Akureyri í gærkvöldi eftir að kannabisefni og tól til neyslu þeirra fundust í fórum þeirra. Ökumaður bíls var jafnframt handtekinn í nótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Slík efni fundust í bílnum og gistir ökumaðurinn nú fangageymslu. Mikil hrina hefur verið af fíkniefnamálum á Akureyri upp á síðkastið. Átta voru handteknir um síðustu helgi og þónokkrir í vikunni. Með síðustu handtökunum eru þær orðnar nærri tuttugu á tæpri viku. Í engu tilviki hefur þó verið lagt hald á umtalsvert magn fíkniefna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×