Innlent

Ölvun ógildir ekki bótarétt

Þótt fólk sé drukkið þegar það verður fyrir óhappi missir það ekki sjálfkrafa rétt til slysa- eða dánarbóta. Hæstiréttur tók af öll tvímæli um þetta þegar Tryggingamiðstöðin var dæmd til að greiða sjö milljónir í dánarbætur vegna konu sem lést þegar henni var ýtt fram af svölum á Kanaríeyjum. Fyrir tveimur árum lést kona á Kanaríeyjum þegar henni var ýtt fram af svölum. Sambýlismaður hennar var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Tryggingamiðstöðin neitaði að greiða dánarbætur með þeim rökum að konan hafi verið drukkin. Aðstandendar gáfust ekki upp, unnu málið í héraðsdómi og í dag í Hæstarétti þar sem staðfest var að Tryggingamiðstöðin ætti að greiða aðstandendum konunnar sjö milljónir króna í bætur. Ólafur Elísson, lögmaður aðstandenda, segir að með þessum dómi sé því slegið föstu að þegar ölvað fólk verði fyrir slysum leiði það ekki eitt og sér til þess að ekki sé bótaréttur fyrir hendi á meðan það sé önnur frumorsök fyrir slysinu, þ.e. slysið verði vegna annars atviks en ölvunarinnar sem slíkrar. Það sé mjög mikilvægt að fá skýrt fordæmi fyrir þessu frá Hæstarétti. Ólafur tekur sem dæmi að ef ölvaður ökumaður stöðvar bifreið sína á rauðu ljósi þar sem keyrt er aftan á hann og hann slasast verður tryggingafélagið nú að greiða honum bætur þar sem ölvunin er ekki frumorsök slyssins. Það þarf þó vart að taka það fram að viðkomandi myndi að sjálfsögðu missa ökuleyfið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×