Innlent

Fékk þrjú ár fyrir fíkniefnasmygl

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Árna Geir Norðdahl Eyþórsson í þriggja ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl, en hann var sakfelldur fyrir að flytja til landsins rúmlega 800 grömm af hassi og 236 grömm af kókaíni. Árni Geir var á skilorði sem hann rauf með þessu broti og var ekki talið tilefni til að skilorðsbinda refsinguna. Kókaínið flutti hollensk kona, svokallað burðardýr, til landsins. Hennar þáttur í málinu var klofinn frá og var hún í síðasta mánuði dæmd í 12 mánaða fangelsi fyrir sinn þátt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×