Sævar Ingi mikilvægastur 23. febrúar 2005 00:01
Tölfræði körfuboltans er margvísleg og gefur mönnum margskonar upplýsingar um frammistöðu leikmanna í Intersportdeild karla. Það er enginn einn tölfræðiþáttur sem nær yfir mikilvægi leikmanna fyrir sín lið. Framlagsjafna NBA-deildarinnar metur heildarframlag leikmanna til síns liðs en það þarf þó ekkert að hafa bein tengsl við gengi liðsins. Fréttablaðið hefur hinsvegar fundið leið til að meta mikilvægi leikmanna með því að skoða gengi liðanna þegar leikmenn skila góðum leikjum (yfir 20 í framlagi) í samanburði í gengi liðsins þegar þeir eiga lakari leiki (undir 20 í framlagi). Menn verða að hafa skilað að minnsta kosti fjórum leikjum yfir 20 í framlagi til þess að komast á listann. Það er hinn 21 árs gamli fyrirliði Haukanna, Sævar Ingi Haraldsson, sem er efstur á blaði þegar þessi mælikvarði á mikilvægi leikmanna er skoðaður. Sævar Ingi hefur skorað 12,7 stig og gefið 6,9 stoðsendingar að meðaltali og er með meðalframlag upp á 16,3 stig hjá Haukunum í vetur. Sævar Ingi hefur verið yfir 20 stig í framlagi í sex leikjum og Haukarnir hafa unnið fimm þeirra (83,3%) en í þeim leikjum sem Sævar Ingi hefur hefur ekki náð framlagi sínu upp í 20 stig þá hafa aðeins 2 af 13 leikjum unnist hjá Haukum (15,4%). Hér munar 67,9% á gengi liðsins. Friðrik Stefánsson hefur einnig veigamiklu hlutverki að sinna hjá Njarðvík og liðið hefur þannig unnið 10 af 11 leikjum þar sem hann hefur náð yfir 20 í framlagi (90,9%) en aðeins 37,5% leikjanna (3 af 8) hafa unnist þegar Friðrik Stefánsson er undir meðallagi en hann er með 13,6 stig, 9,7 fráköst og 2,7 varin skot að meðaltali í leik í vetur. Darrel Lewis hefur gríðarlega mikilvægu hlutverki að gegna hjá Grindavík en liðið hefur tapað öllum þremur leikjunum sem hann hefur ekki náð yfir 20 í framlagi en hann er með 27,8 stig, 7,9 fráköst og 5,2 stoðsendingar að meðaltali í leik til þessa í vetur. Fjórði maðurinn sem er í sérflokki á þessum lista er Marvin Valdimarsson hjá Hamri/Selfoss en hann hefur leikið mjög vel í vetur og framlag hans skiptir liðið miklu máli. Það munar þannig 48,3% á sigurhlutfalli liðsins hvort hann nær yfir 20 í framlaginu eða ekki en Marvin er með 13,9 stig að meðaltali og hefur nýtt 52% skota sinna og 83% vítanna. Hjá erlendu leikmönnunum er mikilvægi Darrel Flake gríðarlega mikið, liðið hefur ekki unnið leik í þau þrjú skipti sem hann hefur farið undir 20 í framlagi en 75% hinna leikjanna sextán. Félagi Flake hjá Fjölni Nemanja Sovic er í þriðja sætinu en á milli þeirra er nýi Kaninn hjá Skallagrími George Byrd sem hefur styrkt liðið með komu sinni. Það vekur þó mikla athygli að frammistaða Kananna hjá toppliði Keflavíkur hefur lítið með gengi liðsins að gera, Keflavíkurliðinu gengur betur í þeim leikjum þar sem Anthony Glover (-27,3%) og Nick Bradford (-15,4%) eru að gera minna sem sýnir kannski enn frekar hversu breidd liðsins er Keflvíkingum mikils virði.
Körfubolti Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Fótbolti Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Körfubolti Fleiri fréttir KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Sara lagði upp í fyrsta leik í Sádi-Arabíu Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli Martin magnaður í fyrsta sigrinum Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Jóhann á sigurbraut í Sádi-Arabíu KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Bjarki með átta gegn Brössum Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn Íslenski boltinn