Innlent

Lögmaður dæmdur fyrir auðgunarbrot

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag starfandi lögmann í átta mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot þegar hann reyndi að skerða rétt þrotabús. Maðurinn bjó til kröfu og falsaði dagsetningu til að koma í veg fyrir að þrotabú gæti gert kröfu í eign skjólstæðinga hans. Í niðurstöðu dómsins segir að við ákvörðun refsingar yfir lögmanninum sé litið til þess að hann hafi framið auðgunarbrot í skjóli opinbers leyfis og brot hans séu sérlega ámælisverð þar sem í þeim felist brot á mikilsverðum starfsskyldum hans sem lögmanns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×