Innlent

Skólastjórinn fann drenginn

. Hann hafði dvalið á heimili vinkonu sinnar. Foreldrar hennar höfðu ekki áttað sig á að drengsins væri leitað. "Ég er búin að hitta hann og taka utan um hann," sagði móðir piltsins í gær, en blaðið birti viðtal við hana í gærmorgun, þar sem hún sagði frá áralangri baráttu sinni og drengsins síns, sem hefur átt við ýmiskonar erfiðleika að stríða. Margir, sem lásu viðtalið og þekktu fjölskylduna áttuðu sig á um hverja var að ræða, þótt það væri að sjálfsögðu nafnlaust. Þetta varð til þess að margir hófu leit að drengnum, að sögn móðurinnar. Það var svo skólastjórin í skólanum hans sem fann hann, eins og áður sagði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×