Innlent

Voru með ófullnægjandi skilríki

Fimm Portúgalar sem lögreglan á Selfossi stöðvaði síðdegis í gær eftir að bíll þeirra hafði mælst á of miklum hraða reyndust vera með ófullnægjandi skilríki. Tveir þeirra höfðu engin skilríki, þrír höfðu aðeins dvalarleyfi og aðeins einn hafði atvinnuleyfi þótt þeir væru allir í fullri vinnu sem smiðir austur í Rangárvallasýslu. Lögreglan þar hefur nú tekið við rannsókn málsins og er allt eins líklegt að einhverjum þeirra verði vísað úr landi í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×