Innlent

Dylgjur óheimilar

Samkeppnisráð úrskurðaði í gær að Hnit hf., hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að gefa í skyn í bréfi til ýmissa sveitarfélaga að keppinautur noti gamlan og úreltan búnað við loftmyndatöku. Það voru Loftmyndir ehf sem kvörtuðu undan bréfi Hnitar, þar sem ekki væri öðrum fyrirtækjum að dreifa á þessum markaði. Að mati Loftmynda var verið að vísa til þess í bréfinu að Loftmyndir hafi keypt notað tæki til loftmyndatöku á árinu 2003.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×