Innlent

Tæpt ár fyrir kjálkabrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 33 ára gamlan karlmann í tíu mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, innbrot og þjófnað. Manninum var gefið að sök að hafa ráðist á konu í íbúð sinni að morgni gamlársdags árið 2003 og misþyrmt henni með þeim afleiðingum að hún kjálkabrotnaði. Þá braust hann inn í hús og bifreið sumarið 2004 og stal þaðan verðmætum. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust, en hann hefur áður hlotið fjórtán refsidóma, þar af fjóra fyrir líkamsárás. Til viðbótar við fangavistina var honum gert að greiða fórnarlambi sínu 200 þúsund krónur í bætur og allan sakarkostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×