Innlent

Dæmdur fyrir fjársvik og innbrot

Rúmlega tvítugur maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir fjársvik, þjófnað og að taka við þýfi. Maðurinn hafði meðal annars framvísað greiðslukorti fyrirtækis í leyfisleysi og brotist inn í íbúðarhúsnæði og stolið þaðan verðmætum. Brotin voru framin í ágúst og september í fyrra. Maðurinn játaði brot sín skýlaust og var það virt honum til refsilækkunar. Til viðbótar við fangelsisvistina var manninum gert að greiða allan sakarkostnað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×