Innlent

8 handteknir vegna fíkniefnamála

Átta manns voru handteknir á Akureyri um helgina vegna fíkniefnamála og enn eitt fíkniefnamálið hefur verið í rannsókn síðan í nótt. Mennirnir átta voru teknir í tvennu lagi og fundust fíkniefni og tól til neyslu þeirra í báðum tilvikum. Talið er að efnin hafi verið til einkaneyslu og var öllum sleppt að loknum yfirheyrslum en fréttastofunni er ekki kunnugt um hvers eðlis málið frá því í nótt er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×