Innlent

Enginn handtekinn vegna ránsins

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna ránsins í Árbæjarapóteki í fyrradag eftir að tveimur mönnum var sleppt í gær að loknum yfirheyrslum. Grunur beindist fljótt að þeim en þeir virðast hafa öruggar fjarvistarsannanir. Ekki liggur fyrir hversu miklu af lyfjum ræningjarnir rændu en það voru örvandi lyf. Apótekarinn ætlar að stórefla allan öryggisbúnað i apótekinu í kjölfar ránsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×