Innlent

Slasast eftir ofsahraðakstur

Karlmaður um þrítugt var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúss eftir bílveltu innanbæjar í Þorlákshöfn. Hann er ekki í lífshættu að sögn vakthafandi lækni. Vitni báru lögreglunni á Selfossi að maðurinn hafi ekið Óseyrarbraut til suðurs á ofsahraða, þvert yfir Egilsbraut og út á opið svæði í bænum. Þar valt bíllinn nokkrar veltur. Slysið varð um klukkan tíu í gærmorgun. Fólksbíll sem maðurinn ók var fluttur burt með dráttabíl. Málið verður rannsakað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×