Innlent

Grunuðum ræningjum sleppt

Karlmönnunnum tveimur sem lögregla handtók á miðnætti, grunaða um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær, hefur verið sleppt. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og voru yfirheyrðir í dag en sleppt að þeim loknum og er málið er enn í rannsókn. Ræningjar réðust inn í apótekið um hádegisbil í gær, klæddir bláum samfestingum og með hettur á höfði, vopnaðir hnífum. Þeir náðu nokkru af lyfjum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×