Innlent

Átta handteknir á Akureyri

Átta manns voru handtekin á Akureyri í gærkvöldi og í nótt vegna fíkniefna í tveimur aðskildum málum. Fyrra málið kom upp um kvöldmatarleytið. Fernt var handtekið og hald lagt á tæki og tól til fíkniefnaneyslu sem og hass og amfetamín. Þeim var sleppt seint í gærkvöldi eftir yfirheyrslu og telst málið upplýst. Þá voru aðrar fjórar manneskjur handteknar laust eftir miðnætti við neyslu fíkniefna í bíl í bænum. Þar var hald lagt á lítilræði af kannabisefnum og tæki og tól til neyslu. Fólkinu var sleppt að loknum yfirheyrslum. Einum skemmtanaglöðum manni var veitt gisting í fangageymslum lögreglunnar á Akureyri og hann trúlega verið því feginn því komið var að honum ósjálfbjarga liggjandi í götunni utan við skemmtistað í bænum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×