Innlent

Þriggja tonna tjakki stolið

Brotist var inn í fiskvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í fyrrinótt og hvarf þjófurinn á brott með verkfærakistu á hjólum, rafsuðutæki, hátíðnisuðutæki og þriggja tonna tjakk. Ljóst er að verðmæti þýfisins er nokkur hundruð þúsund krónur. Þjófurinn kom sér inn um gluggann en nokkuð víst að hann hafi farið annarstaðar út með þýfið. Ekki er vitað hver var að verki en lögreglan í Keflavík vonast til að fá vísbendingar frá fólki ef það hefur einhverjar upplýsingar um málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×