Innlent

Lést í vélsleðaslysi

Maður lést þegar hann fór fram af hengju á vélsleða á Landmannaleið um miðnætti á aðfaranótt föstudags. Félagi mannsins kallaði strax eftir hjálp. Björgunarsveitamenn frá björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveit Hellu komu á staðinn uppúr klukkan tvö ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar sem einnig var kölluð út. Var þá staðfest að maðurinn væri látinn. Þyrlan sneri þá við en hinn látni var fluttur til byggða með björgunarsveitum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×