Innlent

Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu

Enn var brotist inn í íbúðarhús í Hafnarfirði í gær og þaðan stolið verðmætum. Nokkuð hefur verið um innbrot þar að undanförnu, gjarnan um hábjartan daginn, og stórir hlutir á borð við sjónvörp og tölvur borin út án þess að nokkur virðist taka eftir því. Fyrr í vikunni var heilli búslóð stolið úr bílskúr í Breiðholti þar sem hún var í geymslu. Þá var tveimur tölvum og stóru sjónvarpi hnuplað úr íbúðarhúsi í Árbæjarhverfi þannig að faraldurinn einskorðast ekki við Hafnarfjörð. Þjófarnir virðast hafa yfir stórum bílum að ráða því sumir hlutirnir komast varla inn í fólksbíla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×