Innlent

Starfsmaðurinn saklaus af smyglinu

Vegna umfjöllunar DV um fíkniefnasmygl með einu af skipum Eimskips, sem upp komst á síðasta ári, vill félagið koma því á framfæri að starfsmaður þess er ekki viðloðinn málið. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að fíkniefnasmyglarar hafi notið aðstoðar vitorðsmanns hjá Eimskip sem enn starfi hjá félaginu. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip er hið rétta í málinu að rannsókn lögreglu leiddi fljótlega í ljós að umræddur starfsmaður á ekki hlut að þessu máli og er hann ekki grunaður um brot. Eimskip hafi fylgst grannt með rannsókn málsins og fullvissað sig um sakleysi starfsmannsins. Félagið kveðst jafnframt harma að starfsmaður félagsins sé hafður fyrir rangri sök með þessum hætti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×