Innlent

Stálu heilli búslóð

Bíræfnir þjófar létu greipar sópa í bílskúr í Breiðholti í gærkvöldi en þar var heil búslóð geymd. Þeir stálu nær allri búslóðinni og komust undan og hafa vafalítið verið á flutningabíl. Fyrr um daginn brutust þjófar inn í einbýlishús í Árbæjarhverfi og stálu þaðan meðal annars tveimur tölvum og stóru sjónvarpi. Þjófarnir úr báðum þessum innbrotum eru ófundnir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×