Innlent

Í varðhaldi fram í mars

Íslendingurinn sem tekinn var í Danmörku með 35 kíló af hassi í síðustu viku hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. mars næstkomandi samkvæmt upplýsingum dönsku lögreglunnar. Lögreglumaðurinn sem Fréttablaðið ræddi við vildi sem minnst tjá sig um málið og var hinn óhressasti með að upplýsingar um handtökuna hefðu borist til fjölmiðla. Hann sagði þó manninn ekki vera fyrsta Íslendinginn sem hefði verið tekinn fyrir fíkniefnasmygl á þessum slóðum. Ekki liggur fyrir hvert maðurinn hugðist flytja efnið en hann var að koma frá Hollandi í gegnum Þýskaland og var handtekinn í Padborg í Danmörku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×