Innlent

Þrennt flutt á sjúkrahús

Þrennt var flutt á sjúkrahús eftir að bíll sem fólkið var í fór út af veginum á Akranesvegamótum. Tvennt fékk að fara heim að lokinni skoðun. Einum var hins vegar haldið eftir á sjúkrahúsinu. Sá hafði orðið fyrir höfuðmeiðslum og þótti því rétt að hafa eftirlit með viðkomandi, ekki var þó talið að um alvarleg meiðsl væri að ræða að sögn lögreglu. Bíllinn fór út af veginum þegar honum var ekið af Akranesvegi inn á Vesturlandsveg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×