Innlent

Í stolnum lögreglubúning

Maður nokkur var handtekinn í stolnum lögreglubúningi rétt fyrir klukkan fimm í fyrrinótt. Búningnum sagðist hann hafa stolið á búningalager í Þjóðleikhúsinu. "Hann var að áreita fólk á Laugaveginum og hljóp svo í burtu. Við náðum honum á Hverfisgötunni og hann fékk að prófa allan löggupakkann, bæði löggubílinn, fangageymsluna og rannsóknardeildina," sagði lögreglumaður sem Fréttablaðið ræddi við í gær. Maðurinn verður væntanlega ákærður bæði fyrir óspektir á almannafæri og þjófnað auk þess sem það varðar sekt að nota lögreglubúning opinberlega án þess að hafa til þess heimild.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×