Innlent

Lögreglubifreið stórskemmdist

Ein bifreið lögreglunnar í Hafnarfirði er óökufær eftir gærkvöldið þar sem ökumaður annars fólksbíls keyrði þá inn í hlið hennar. Lögreglubíllinn var stórskemmdur að sjá, að sögn vegfaranda sem hafði samband við fréttastofuna, en lögreglumennirnir sem í bifreiðinni voru sluppu ómeiddir að sögn varðstjóra á vakt. Hann kvaðst ekki hafa upplýsingar um það hvort áreksturinn hafi orðið vegna færðar eða annarlegs ástands ökumanns fólksbílsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×