Erlent

Rumsfeld kominn til Íraks

Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, kom til Íraks í dag til þess meðal annars að hitta írakska hermenn og lögreglumenn sem Bandaríkjamenn eru að þjálfa. Rumsfeld sagði að Írakarnir yrðu að búa sig vel undir þá ábyrgð sem því fylgdi að gæta öryggis þjóðar sinnar. Innanríkisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak segir að þeir verði tilbúnir til þess að sjá sjálfir um öryggismál sín eftir átján mánuði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×