Innlent

Fær forræði yfir dóttur sinni

Hæstiréttur dæmdi í dag franskri konu forræði yfir dóttur hennar. Konan og franskur fyrrverandi eiginmaður hennar höfðu deilt um forræði yfir fimm ára dóttur þeirra. Barnið hafði búið hjá móður sinni og taldi Hæstiréttur að henni liði vel þar og breytingar á aðstæðum yrðu henni ekki til góðs. Þess má geta að fyrr í vikunni dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur föður stúlkunnar í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa numið dóttur sína á brott og farið með hana til Frakklands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×