Innlent

Sýknaður af kynferðisbroti

Karlmaður sem í héraðsdómi var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir langvarandi kynferðisbrot gagnvart ungri stúlku var sýknaður af Hæstarétti í dag. Stúlkan er dóttir konu sem starfaði hjá manninum og kom oft í vinnuna með móður sinni. Hafði héraðsdómur dæmt hann fyrir brot gegn stúlkunni, meðal annars fyrir samræði þegar hún var á aldrinum níu til þrettán ára. Samkvæmt dómi Hæstaréttar var sökin fyrnd þegar rannsókn lögreglu hófst. Maðurinn er samt dæmdur til að greiða stúlkunni bætur vegna þess að bótakrafan var ekki fyrnd þótt refsikrafan hafi verið það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×