Innlent

Þriðji söluturninn rændur

Þriðja sjoppuránið í þessari viku var framið þegar maður vopnaður barefli rændi söluturn við Langholtsveg um níuleytið í gærkvöldi. Hin voru framin í Mjódd og í Grafarholti. Ræninginn í gærkvöldi var með sólgleraugu líkt og ræninginn í Mjódd í fyrrakvöld og grunar lögregluna allt eins að sami maður hafi verið að verki á öllum stöðunum. Enginn hefur enn verið handtekinn vegna ránanna en lögreglan hefur upplýst langflest sjoppurán á höfuðborgarsvæðinu undanfarin misseri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×