Innlent

Unglingsstúlkur fá lífstíðardóm

Tvær unglingsstúlkur, 18 og 19 ára, voru í dag dæmdar í ævilangt fangelsi í Englandi fyrir að hafa sparkað og barið og stungið drukkinn miðaldra mann til bana. Þær staðhæfðu í vörn sinni að maðurinn hefði nálgast aðra stúlkuna í teiti sem hann hélt að heimili sínu, nuddað annan fót hennar og leitað eftir kynmökum við hana. Dómarinn sagði að hversu ósæmileg sem hegðun mannsins hefði verið væri ekki hægt að réttlæta gjörðir stúlknanna og að þær yrðu að bera ábyrgð á því það sem eftir væri ævinnar. Stúlkurnar geta fyrst sótt um reynslulausn eftir 13 ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×