Innlent

Meintur brennuvargur enn í haldi

Karlmaður, sem er grunaður um að hafa kveikt í gömlu íbúðarhúsi við Kársnesbraut í Kópavogi í gær, er enn í haldi lögreglu og ræðst í dag hvort óskað verður eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir honum. Húsið stórskemmdist. Þá skemmdist íbúð í parhúsi á Fáskrúðsfirði verulega þegar eldur kviknaði þar í gær. Enginn var heima þegar eldurinn kom upp og urðu miklar skemmdir á húsnæðinu og innanstokksmunum. Grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað út frá eldavél.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×