Innlent

Grunaður um íkveikju

Karlmaður á sextugsaldri er í haldi lögreglunnar í Kópavogi grunaður um að vera valdur að eldsvoða í einbýlishúsi við Kársnesbraut. Samkvæmt upplýsingum lögreglu kom eldur upp í húsinu um tvöleytið í dag en nágrannar höfðu gert slökkviliði viðvart. Mikill eldur logaði þá í húsinu og er það mikið skemmt eftir brunann. Engum manni varð meint af en um klukkustund tók að slökkva eldinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×