Innlent

Fimm á sjúkrahús eftir ofsaakstur

Fimm voru fluttir á slysadeild eftir ofsaakstur í nótt. Lögreglan í Reykjavík mældi ökumann á 190 kílómetrahraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan þrjú og náðist hraðaksturinn á myndband lögreglunnar. Ökumaðurinn stöðvaði ekki bílinn þegar hann mætti laganna vörðum heldur hélt áfram ferðinni og hafnaði aftan á bifreið sem var að taka af stað við umferðarljósin á mótum Miklubrautar og Grensásvegar. Fjórir voru í þeim bíl og voru þeir ásamt ökumanninum á hinum bílnum fluttir á slysadeild í nótt. Að sögn lögreglu eru meiðsl þeirra ekki talin alvarleg en ofsaökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×