Innlent

Barði mann með flösku

Ákæra á hendur tvítugum manni var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Maðurinn er sakaður um sérstaklega hættulega líkamsárás eftir að hafa slegið annan mann í höfuðið með flösku. Flaskan sem notuð var til árásarinnar brotnaði við höggið með þeim afleiðingum að þolandinn hlaut skurð aftan á vinstra eyra. Árásin átti sér stað í Hafnarfirði í maí á síðasta ári. Telst brotið varða við 218. grein almennra hegningarlaga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×