Innlent

Dettifoss fer til Rotterdam

Þýskt dráttarskip sem mun draga Dettifoss til Rotterdam er væntanlegt til hafnar á Eskifirði á morgun. Að sögn Höskuldar H. Ólafssonar, aðstoðarforstjóra Eimskips, var skipið pantað á sunnudag þar sem ljóst var að draga þyrfti skipið utan til viðgerðar. "Það var fyrirséð að okkar varðskip væru ekki í stakk búin til að draga Dettifoss á milli landa nema við mjög góðar aðstæður," segir Höskuldur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×